Danski dómsmálaráðherrann hefur verið beðinn um að svara því hvort saksóknarar megi bera höfuðslæðu, eða hijab eins og hún heitir á arabísku.Danski saksóknarinn Zahra Sediqi skrifaði nýverið á samfélagsmiðilinn Linkedin að hún væri auðmjúk yfir því að vera sú fyrsta til að gegna því starfi í Danmörku sem einnig ber hijab. Fjölskylda Sediqi flúði til Danmerkur frá Afganistan þegar hún var fimm ára en hún hefur búið í landinu í 27 ár.Í kjölfar færslunnar lagði talsmaður útlendingamála hjá Danmerkurdemókrötunum, Dennis Flydtkjær, áðurnefnda fyrirspurn fyrir Nicolai Wammen dómsmálaráðherra. Hann benti á að síðan árið 2009 hafi það verið hluti af réttarfarslögum að dómarar megi ekki bera trúarleg tákn. ENGAR VERKLAGSREGLUR BANNA HIJAB Í skriflegu svari til danska ríkisútvarpsins, DR, segir s