Andleg vanlíðan og einmanaleiki meðal ungmenna hefur aukist að sögn Dóru Guðrúnar Guðmundsdóttur, sviðsstjóra lýðheilsusviðs Embættis landlæknis.„Við höfum kannski sjaldan verið jafn mikið í tengslum í gegnum samfélagsmiðla en það er alltaf hærra og hærra hlutfall sem er einmana,“ segir Dóra. Hún segir mögulegt að samfélagsmiðlabann fyrir 15 ára og yngri geti haft einhver áhrif en að fleiri þættir þurfi að koma til.Dóra leggur áherslu á að félags- og tilfinningafærni verði kennd á öllum skólastigum svo ungmenni læri að ræða erfiðar tilfinningar og takast á við mótlæti á uppbyggilegan hátt. „Þess vegna er svo mikilvægt að við tölum saman, þvert á kynslóðir,“ segir Dóra.