Plínio Vicentin Júnior, 59 ára þyrluflugmaður, býður sig fram til brasilíska þingsins undir nafninu Plínio Trump. Hann er einn nokkur hundruð óvenjulegra frambjóðenda sem halda lífi í brasilískri kosningahefð sem nær aftur um nærri átta áratugi.Plínio líkir eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta í útliti og framkomu. Hann greiðir hárið á svipaðan hátt, klæðist löngu appelsínugulu bindi og hermir jafnvel eftir göngulagi forsetans.„Trump er viðkunnanlegur og goðsagnakenndur,“ sagði Plínio Trump við AP í Juiz de Fora. „Fáir hafa sýnt mér hæðnisglott. Flestir brosa og faðma mig.“Nokkur hundruð „grín“- eða mótmælaframbjóðendur sækjast eftir þingsætum í Brasilíu í ár. Hefðin er rakin aftur til sjötta áratugarins. Frambjóðendurnir þurfa að uppfylla sömu skilyrði og aðrir sem bjóða sig fram. NOKKU