Ekkert má út af bregða ef Ísland á að halda HM 2031

Lítið má fara úrskeiðis við byggingu nýrrar Þjóðarhallar ef að Ísland ætlar að verða einn af gestgjöfunum á heimsmeistaramótinu í handbolta 2031.Borgarráð samþykkti verksamning milli Þjóðarhallar ehf. og ÍAV um byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal.Höllin á að vera fullbúin 25. janúar 2030, eða rétt tæpu ári áður en áætlað er að flautað verði til leiks á mótinu. Ný þjóðarhöll er frumskilyrði fyrir því að Ísland verði einn af gestgjöfum mótsins. Ekkert annað íþróttahús á landinu stenst þær kröfur sem settar eru á gestgjafa á slíkum mótum.„Við erum bara gríðarlega hamingjusöm hjá handknattleikshreyfingunni og ég held bara öll íþróttahreyfingin sem mun koma til með að nýta þetta mannvirki bara. Löngu kominn tími á þetta og bara frábærar fréttir. Að sjálfsögðu fylgjumst við bara með og potu
Ekkert má út af bregða ef Ísland á að halda HM 2031

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd