Aðgerðir sem forsætisráðherra boðaði í dag um að draga úr boðuðum gjaldskrárhækkunum, meðal annars, er það sem var samið um fyrir tveimur árum þegar kjarasamningar voru undirritaðir. Þetta segir formaður VR. Forseti ASÍ segir „ÞÓ ÞAÐ NÚ VÆRI“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í dag að hún ætlaði á morgun að fara fyrir ríkisstjórn með aðgerðalista og tillögu að yfirlýsingu ríkis, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um næstu skref til að verja kjarasamninga.Með þessu ætti að ná verðbólgu niður og skapa aðstæður fyrir vaxtalækkun. Ríkisstjórnin sé einnig reiðubúin til að halda hækkunum á gjaldskrám innan við 2,5% á næsta ári.Eftir rétta viku rennur út sá frestur sem aðilar atvinnulífsins hafa til að