Íslendingar gætu nýtt eigin heilsufarsupplýsingar betur til að fylgjast með áhættuþáttum og koma fyrr auga á breytingar sem kunna að benda til veikinda. Þetta sagði Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, í Kastljósi kvöldsins.Thor nefndi sérstaklega blóðþrýsting og blóðsykur, sem séu einfaldar mælingar en geti gefið mikilvægar upplýsingar ef þeim er fylgt eftir yfir tíma.„Aðalatriðið er kannski að mæla hann nokkrum sinnum, búa sér til heilsusögu,“ sagði Thor um blóðþrýsting. Hann sagði reynslu úr rannsóknum Hjartaverndar hafa sýnt að algengt væri að fólk gengi um með of háan blóðþrýsting eða blóðsykur án þess að vita af því. Slíkir áhættuþættir geti leitt til sjúkdóma bæði eftir skemmri og lengri tíma.Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, segir re