Afturelding vann stórsigur á Fram, 42-24, í síðasta leik kvöldsins í Olís-deild karla í handbolta. Fyrr í kvöld unnu Haukar Víking 38-29 og KA hafði betur gegn ÍBV, 31-25.KA leiddi ÍBV 15-13 í hálfleik á Akureyri og náði að auka forskotið eftir hlé. Akureyringar unnu að lokum sex marka sigur, 31-25, og hafa unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum.Haukar halda áfram fullkominni byrjun sinni á tímabilinu. Hafnfirðingar voru aðeins tveimur mörkum yfir í hálfleik gegn Víkingi, 16-14, en stungu af eftir hlé og unnu að lokum öruggan níu marka sigur, 38-29. Haukar hafa þar með unnið alla fimm leiki sína í deildinni.Afturelding gerði síðan góða ferð úr Mosfellsbæ í Úlfarsárdal og fór illa með Fram. Mosfellingar skoruðu 42 mörk gegn 24 hjá Fram og unnu því með 18 marka mun. Hákon Daði Styrmisson s