Sveitarstjórn Hrunamannahrepps í uppsveitum Árnessýslu mótmælir fyrirhuguðum hækkunum stjórnvalda á virðisaukaskatti á aðgang að baðlónum harðlega. Hún skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum.Málið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar í dag. Þar var samþykkt einróma að minna á að í Árnessýslu sé fjöldi baðlóna sem hafi borið hróður landsins víða.„Í Hrunamannahreppi eru þrjú baðlón, Gamla laugin, Hrunalaug og í Kerlingarfjöllum, allt þekktir áfangastaðir sem hafa mikla þýðingu fyrir atvinnulíf og ferðaþjónustu á svæðinu. Aðdráttarafl þeirra styður við störf, eflir aðra þjónustu og skapar verðmæti í nærsamfélaginu. Mikilvægi þeirra nær því langt út fyrir eigin rekstur,“ segir í bókuninni af fundinum í dag.Að mati sveitarstjórnar er hætta á að fyrirhuguð hækkun á virðisaukaskatti, úr 11