Formenn Samtaka atvinnulífsins og ASÍ eru sammála um að skilaboð forsætisráðherra séu skref í rétta átt og hjálpi til við samningaborðið. Forsætisráðherra boðaði í dag aðgerðir til að koma í veg fyrir átök á vinnumarkaði með því meðal annars að draga úr boðuðum gjaldskrárhækkunum. Hvort það dugi til að koma í veg fyrir að kjarasamningar haldi verði að koma í ljós.„Það sem upp á vantar er að Samtök atvinnulífsins skila algjörlega auðu,“ segir Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ. > „Þetta eru kjarasamningar verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins og endurskoðunin snýr að því. Þannig að Samtök atvinnulífsins verða að koma fastar inn í þetta en það hjálpar alveg klárlega það sem ríkisstjórnin er að leggja inn í þetta.“ BRUGÐIÐ GETI TIL BEGGJA VONA Bjarni Benediktsson, framkvæmdas