Mikil vinna var lögð í fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats í Grindavík sem birt var í síðustu viku. Skarphéðinn Berg Steinarsson verkefnisstjóri forsætisráðuneytisins í málefnum Grindavíkur segir áhættumatið í sífelldri endurskoðun. Áhættumatið grundvallast á hættumati Veðurstofunnar, kringumstæðum á vettvangi og mótvægisaðgerðum.„Og allt þetta breytist stöðugt. Og það er áskorunin að vera þá sífellt að fylgjast með og endurbæta áhættumatið,“ segir Skarphéðinn.Ýmsar mótvægisaðgerðir í áhættumati Grindavíkur eru eftir. Það á við um flóttaleiðir í slæmu veðri og einnig snjóruðning. Sífelld endurskoðun stendur yfir, segir verkefnisstjóri stjórnvalda.Alvarlegasta sviðsmyndin í áhættumatinu er eldgos innan bæjar eins og varð 14. janúar 2024. Sú staða er talin ásættanleg, segir í matinu,