Ágreiningur um stjórnarhætti ástæða þess að Hörður hættir

Ástæða þess að Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar er ágreiningur um stjórnarhætti.Hörður greindi frá ákvörðun sinni á starfsmannafundi eftir hádegi í dag. Á fundinum kom fram að ástæða þess að hann ákvað að hætta væri ágreiningur um stjórnarhætti.Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, sagði við fréttastofu fyrir stundu að Hörður hefði stýrt fyrirtækinu vel í 17 ár en að eðlilega væri fólk ekki alltaf sammála.Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri tekur tímabundið við starfi forstjóra um næstu mánaðamót þar til nýr forstjóri verður ráðinn.
Ágreiningur um stjórnarhætti ástæða þess að Hörður hættir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd