Framhaldsskólanemar í Frakklandi hafa komið saman víða um landið í dag til að mótmæla yfirfullum kennslustofum, skorti á kennurum, slæmu ástandi skólabygginga og miklum hita í kennslustofum þegar hitabylgjur hafa geisað í ár.Mótmælin hafa staðið síðan í síðustu viku og hafa ekki alltaf farið vel fram. Dæmi eru um að ráðist hafi verið á skólastjóra. Lögregla hefur handtekið hundruð nemenda á aldrinum 15 til 18 ára fyrir óspektir í dag. Ríkisstjórn landsins segir mótmælin hafa breyst í ofbeldi. Forsætisráðherra Frakklands, Sebastien Lecornu, hvatti alla ráðherra til að fresta ferðalögum um landið vegna ástandsins.Ófremdarástand hefur ríkt og yfir 160 skólum hefur verið lokað. Slökkvilið var kallað út í Nantes eftir að eldur var kveiktur við inngang framhaldsskóla.Í París, Marseille og víðar