Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er væntanlegur til Íslands í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Íslands. Þar segir að ráðherrann hafi þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn til landsins.„Það er mikið ánægjuefni að Rubio hafi þegið heimboðið sem ég ítrekaði við hann í New York á dögunum. Samstarf Íslands og Bandaríkjanna stendur á traustum grunni og heimsókn hans hingað er til marks um það,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu í yfirlýsingunni.Þar er enn fremur haft eftir utanríkisráðherra að það hafi verið sérstakt áherslumál hennar í embætti að styrkja tengsl Íslands við nánustu vina- og bandalagsríki beggja vegna Atlantshafsins. Stjórnvöld á Íslandi eigi í virku samtali við Bandaríkin um sameiginlega hagsmuni. Þar
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd