Skriðuviðvörun til morguns

„Við fengum nokkrar tilkynningar um aurskriður á Austfjörðum en ekkert alvarlegt sem olli tjóni eða lokaði vegum. En það er mjög mikið vatn á ferðinni á þessum áhrifasvæðum og ekki hægt að útiloka fleiri skriður eða grjóthrun.“Þetta segir Daniel Ben-Yehoshua, sérfræðingur í ofanflóðahættumati hjá Veðurstofunni.Nokkrar aurskriður hafa fallið á Austfjörðum þar sem skriðuviðvörun er í gildi. Fossá við botn Reyðarfjarðar hefur verið mjög vatnsmikil. Hún flæddi yfir bakka sína í morgun og sökkti vinnuvélum við bæinn Sléttu.Gul skriðuviðvörun er í gildi á Suðausturlandi, Austfjörðum og sunnanverðu miðhálendinu. Hún verður í gildi til klukkan 6 í fyrramálið.Á Austfjörðum er jarðvegur mettaður og úrkoma getur valdið skriðuvirkni, einkum í bröttum hlíðum. Draga á úr úrkomu í kvöld og nótt og þá ætt
Skriðuviðvörun til morguns

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd