Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað

Starfsmaður verktakafyrirtækisins Nestaks slasaðist alvarlega í vinnuslysi á þriðjudag. Starfsmaðurinn, sem er karl á fertugsaldri, var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík með sjúkraflugi.Ari Benediktsson framkvæmdastjóri Nestaks segir manninn hafa fallið fram af svölum á annarri hæð þar sem hann var að störfum á verkstað í miðbæ Neskaupsstaðar á þriðjudag.Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, staðfestir að slysið sé til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu.
Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd