Meðal þeirra sem kynntu möguleika þörunga á ráðstefnunni Gull á grunnsævi fyrr í mánuðinum var Svava Kristinsdóttir, forstjóri og stofnandi Marimedx. Það er íslenskt nýsköpunar- og hátæknifyrirtæki á sviði lífvísinda sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á afurðum fyrir vefjaendurnýjun.