Landsliðsmaðurinn í handbolta Orri Freyr Þorkelsson mun verða lærisveinn Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá þýska liðinu Gummersbach.Orri skrifar undir tveggja ára samning en hann mun fara frá portúgalska liðinu Sporting Lissabon næsta sumar. Samningurinn er frá 2027 til 2029.Orri hefur leikið við góðan orðstír í vinstra horninu hjá Sporting frá 2023. Hann er 27 ára gamall og hefur verið fastamaður í landsliðinu síðustu ár.Hann hefur skorað 131 mark í 38 landsleikjum.Þeir Garðar Ingi Sindrason, Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson leika með liðinu.Guðjón Valur tók við Gummersbach árið 2020 þegar liðið var í 2. deild. Undir hans stjórn hefur liðið tekið skref fram á við með hverju ári. Á síðasta tímabili var hann valinn þjálfari ársins þegar að liðið endaði í 4. sæti þýsku deildarinnar.