Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Volker Turk, brýnir fyrir stjórnvöldum í Tennessee í Bandaríkjunum að reyna ekki aftur að taka Christu Pike af lífi. Hún er á dauðadeild fangelsis í ríkinu og lifði af tvær aftökutilraunir í gær.Alríkisdómstóll fyrirskipaði að aftökunni skyldi frestað tímabundið í ljósi þess að hún var enn á lífi eftir að hafa verið sprautuð tvisvar sinnum með eitri sem notað er við aftökur.„Mál Christu Pike sýnir glögglega hvers vegna ætti að afnema dauðarefsingu,“ segir Turk í yfirlýsingu á X. „Langvarandi þjáningar, andlegar og líkamlegar, sem hljótast af ítrekuðum misheppnuðum tilraunum til aftöku eru grimmilegar. Auk þess er ýmsum spurningum um réttláta málsmeðferð ósvarað.“Þá hvetur mannréttindastjórinn yfirvöld í Tennessee til þess að falla frá áformum um að re