Orri Steinn Óskarsson skoraði sitt tíunda landsliðsmark á þriðjudag er hann tvöfaldaði forystu Íslands gegn Lúxemborg í 3-0 sigri liðsins í C-deild Þjóðadeildarinnar. Orri, sem hefur spilað 20 landsleiki, skorar því að meðaltali mark í öðrum hvorum landsleik. Eini sem skákar hlutfalli Orra og er með fleiri en fimm landsliðsmörk er Ríkharður Jónsson sem skoraði 17 mörk í 33 landsleikjum. Þá skoraði Andri Lucas Guðjohnsen sitt tólfta landsliðsmark gegn Lúxemborg og er hann nú tveimur mörkum frá því að jafna afa sinn, Arnór Guðjohnsen. Fjórir af 18 markahæstu landsliðsmönnum Íslands frá upphafi voru valdir í hópinn fyrir yfirstandandi landsleikjaglugga.