KR er að festa kaup á Óðni Bjarkasyni frá Aftureldingu og mun hann ganga til liðs við félagið eftir tímabil. Frá þessu var greint í Dr. Football og passar það við heimildir Fótbolta.net. Búist er við að hann verði tilkynntur sem nýr leikmaður KR von bráðar.