Mikið hefur verið rætt og ritað um Manchester City málið og mögulegar refsingar félagsins vegna alvarlegra fjárhagsbrota. Eignarhald enskra úrvalsdeildarfélaga hefur verið talsvert í umræðunni og Mirror ákvað að leggja dóm á eigendur og raða þeim upp frá þeim bestu til þeirra verstu. Eigendur Brentford og Brighton eru efstir á listanum en þeir eru báðir stuðningsmenn þessara liða frá því í æsku.