Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður Heilahjálpar, segir það lágmark að bera gjöf sterkra geðlyfja undir aðstandendur fólks með heilabilun.Bæði hún og formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segja ljóst að mönnunarvandi hrjái hjúkrunarheimili landsins.„Ef starfsfólk eða læknar á hjúkrunarheimili telja ástæðu til að gefa geðlyf þeim sem ekki hefur fengið neina slíka greiningu og er með heilabilun – þá er lágmark að ræða við aðstandendur ef sá sem er með heilabilunina getur ekki svarað fyrir sig sjálfur.“segir Ragnheiður. Hún segir að sér hafi verið brugðið eftir að hafa horft á umfjöllunina sem segir varpa ljósi á manneklu á hjúkrunarheimilum. FAGFÓLK ÞARF TIL AÐ SINNA MJÖG VEIKU FÓLKI Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, tekur í svipaðan streng. Hún telu