Hörður lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar

Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Hann tók við stjórn fyrirtækisins síðla árs 2009. Landsvirkjun greinir frá þessu í tilkynningu.Þar segir að á þeim 17 árum sem Hörður hefur gegnt starfinu hafi orðið stakkaskipti á bæði rekstri Landsvirkjunar og raforkumarkaðnum á Íslandi.„Hörður leiddi fyrirtækið í gegnum miklar breytingar þar sem meðal annars var endursamið við stóra viðskiptavini, fjórar nýjar virkjanir byggðar, skuldir lækkaðar og í kjölfarið er Landsvirkjun nú farin að skila þjóðinni tugum milljarða í skatta og arðgreiðslur á hverju ári,“ segir í tilkynningu Landsvirkjunar. GEGNIR STARFINU ÚT OKTÓBER „Ég stíg bæði ánægður og stoltur frá borði eftir þessi sautján ár. Fyrst og fremst langar mig að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mör
Hörður lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd