Bráðabirgðaþjálfarinn Atanas Ribarski mun stýra Búlgaríu í næstu tveimur leikjum í Þjóðadeildinni, gegn Íslandi á laugardag og gegn Lúxemborg á þriðjudag. Hann tekur við tímabundið af Alexander Dimitrov sem sagði upp eftir tap gegn Lúxemborg og jafntefli gegn Eistlandi. Ribarski er þjálfari U19 liðsins en stýrir A-landsliðinu út þennan glugga.