Smalling til Porto (Staðfest)

Varnarmaðurinn Chris Smalling hefur skrifað undir samning við portúgalska félagið Porto. Hann hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Al-Fayha í Sádi-Arabíu í sumar. Smalling er 36 ára og var einnig orðaður við Rangers í Glasgow. Hann hefur skrifað undir samning við Porto til loka tímabils. Porto hefur unnið alla sjö deildarleiki sína til þessa á tímabilinu og er þegar komið með fimm stiga forystu á Benfica.
Smalling til Porto (Staðfest)

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd