Um 500.000 manns hafa hætt að fylgja portúgalska landsliðinu í fótbolta til stuðnings Cristiano Ronaldo. Ronaldo fór heim úr landsliðsverkefni Portúgals þar sem hann sat allan tímann á varamannabekknum gegn Noregi.Var það í fyrsta sinn frá 2008 sem Ronaldo kom ekkert við sögu í landsleik. Þjálfarinn Jorge Jesus sagði að leikmynd leiksins hefði einfaldlega ekki kallað eftir kröftum Ronaldo. Forseti portúgalska sambandsins flaug og hitti Jesus og Ronaldo á krísufundi. Það fór ekki betur en svo að Ronaldo fór heim en hann hafði ekki æft með liðinu síðustu daga.Jesus var sagður hafa lofað að biðjast afsökunar á blaðamannafundi en það gerði hann ekki. Ronaldo hefur sagt að hann muni segja sannleikann í þessu máli síðar. HVERSU MARGIR HÆTTU AÐ FYLGJA PORTÚGAL? Í gærkvöldi þegar Ronaldo tilkyn