Allir níu sakborningarnir í Straumsvíkurmálinu neituðu sök við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Aðeins einn var viðstaddur þingfestingu en hinir tóku þátt frá fangelsunum að Litla-Hrauni og Hólmsheiði í gegnum fjarfundarbúnað.Níu karlmenn, sex erlendir og þrír íslenskir, eru ákærðir fyrir innflutning á yfir 100 kílóum af kókaíni í sjókistu súrálsskips sem kom til hafnar í Straumsvík í júní.Ákæran er í þremur hlutum. Fimm erlendir karlmenn ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að sammælast um og framkvæma innflutning á 106,2 kg af kókaíni með súrálsskipi.Íslendingarnir þrír eru ákærðir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að taka á móti fíkniefnunum. Sjötti erlendi maðurinn er ákærður fyrir að hafa flutt inn kafara