Útboð vegna nýrrar stúku HK við Kórinn hefur verið metið ólögmætt af kærunefnd útboðsmála og hefur útboðið nú verið fellt úr gildi. Þetta kemur fram í skrifum Jónas Más Torfasonar, bæjarfulltrúar Kópavogsbæjar og oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, á Facebook. „Þetta eru mikil vonbrigði þó maður hafi búist við þessu þegar þetta fór fyrir kærunefndina,“ segir Sigurjón Hallgrímsson, formaður fótboltadeildar HK, í samtali við Fótbolta.net. Fyrirhugað var að reisa 1200 manna stúku með þjónustubyggingu á tveimur hæðum, upphitaðan gervigrasvöll og flóðlýsingu. Sigurjón sagði í viðtali við Fótbolta.net fyrir tæpu ári síðan að félagið vonaðist til að leika utandyra 2028. Útboðið, sem fór fram síðasta vetur, var metið ógilt þar sem kærunefnd taldi að Kópavogsbær hefði ekki staðið rétt að mati á t