Stjórn Knattspyrnusambands Íslands fundar með Reykjavíkurborgar um aðkomu borgarinnar að rekstri Laugardalsvallar. Rekstur þjóðarleikvangsins er ekki sjálfbær og knattspyrnuhreyfingin tekur taprekstur á sig.Stjórn KSÍ lagði fram tillögu á síðasta stjórnarfundi varðandi taprekstur Laugardalsvallar. KSÍ kallar eftir fundi og samningaviðræðum við Reykjavíkurborg en síðasti samningur rann út í árslok 2025. Fjármunir knattspyrnuhreyfingarinnar eru nýttir í taprekstur Laugardalsvallar, sem er ekki sjálfbær.Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, ræddi málið. MÁLIÐ ÞOKAST ÁFRAM Fundurinn var í ágúst en síðan þá hafa mál þokast áfram. Eysteinn segir að viðræður séu hafnar milli borgarinnar og KSÍ. Hildur Björnsdóttir, nýi borgarstjóri Reykjavíkurborgar, er að koma sér inn í málið. Þorval