Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu

Fjórir karlmenn eru grunaðir um að hafa flutt fimm kíló af amfetamíni til landsins með hraðsendingu frá Þýskalandi. Þrír þeirra voru handteknir í byrjun september og sá fjórði viku síðar.Mennirnir voru úrskurðaðir í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, til 28. október, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Fjórmenningarnir eru jafnframt grunaðir um að hafa veitt fleiri fíkniefnasendingum viðtöku á undanförnum vikum. Við húsleitir fundust fíkniefni, meðal annars eitt kíló af ketamíni.Í tilkynningu lögreglu segir að stefnt sé að því að ljúka rannsókn fljótlega. Málið verði í framhaldinu sent til embættis héraðssaksóknara.
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd