Æskuvinur portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra skuldaði honum milljónir vegna fíkniefnaviðskipta. Vitni, sem er fyrrverandi maki æskuvinarins, sagði að slitnað hefði upp úr vinskapnum vegna skuldarinnar á vordögum 2025.Þetta kom fram í máli vitnisins þegar hún gaf skýrslu á þriðja degi aðalmeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjaness.Í málinu er Georgios Ntentes frá Grikklandi gefið að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.Á fyrsta degi aðalmeðferðar kom fram í máli aðstandenda hins látna að Georgios hefði skuldað honum pening, en systir hans taldi upphæðina nema á annað hundrað þúsund.Gera átti hlé á aðalmeðferð má