Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir á sviði sóttvarnalæknis, segir slæmar og góðar fréttir að finna í ársskýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun á Íslandi 2025. Þær góðu séu að sýklalyfjasala dróst saman um tæp 5%. Ísland noti þó enn meira af sýklalyfjum en hin Norðurlöndin. Slæmu fréttirnar eru að aukning hafi orðið í greiningu á bakteríum sem séu sýklalyfjaónæmar.„Varðandi sýklalyfjaónæmi þá er það almennt lítið hér miðað við mörg Evrópulönd en við sjáum samt merki um aukið ónæmi hjá ákveðnum bakteríum og þetta aukna ónæmi getur gert sýkingar erfiðari í meðferð og fækkað þeim sýklalyfjum sem við getum notað,“ segir Anna Margrét.Anna Margrét segir að sem dæmi megi nefna aukið ónæmi fyrir E. coli-bakteríum hér á landi. „Þar erum við að sjá aukið ónæmi, bæði svokallað ESBL-ónæmi og alvar