Samkvæmt upplýsingum frá HMS eru alls tæplega 460 nýjar íbúðir til sölu í Hafnarfirði, töluvert fleiri en í Kópavogi, 190, og Garðabæ, 286, en þó ekki eins margar og í Reykjavík - þar sem um 630 íbúðir eru á söluskrá.Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir að skýringin á þessari stöðu sé meðal annars sú að á árunum 2024 og 2025 hafi verið lokið við um 1.100 íbúðir í Hafnarfirði. Margar þeirra eru í Hamraneshverfi en þar er gert ráð fyrir tæplega 1.900 íbúðum þegar hverfið verður fullbyggt. HÁIR VEXTIR OG STRÖNG LÁNÞEGASKILYRÐI Vandinn snúist að miklu leyti um háa vexti og ströng lánþegaskilyrði. Fólk sem vilji kaupa íbúð komist ekki inn á markaðinn. Í Hamraneshverfi sé verið að byggja nýtt hverfi með tiltölulega ódýrum íbúðum, a.m.k. mun ódýrari en á þéttingareitum, sem