Eitt helsta mælitæki á góðan rekstrarárangur, stöðugleika, þrautseigju og sjálfbærni íslenskra fyrirtækja er vottunin Framúrskarandi fyrirtæki. Einungis um 2% allra fyrirtækja landsins standast skilyrðin ár hvert. Creditinfo hefur nú hert skilyrðin, þau fyrirtæki sem falla undir lög um kynjahlutfall í stjórn þurfa að fylgja þeim lögum til að geta talist Framúrskarandi fyrirtæki.