Matthías Már Magnússon, dagskrárstjóri Rásar 2, endaði á bráðamóttökunni fyrir tveimur vikum sökum orkuleysis og leiddu rannsóknir í ljós mikið blóðleysi. Ástæðan fyrir því var krabbamein í ristli sem hafði jafnframt dreift sér í lifrina. Nú taki við barátta sem þau hjónin ætli sér að vinna.