Ísland féll um tvö sæti í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar og hefur fallið um níu sæti á fimm árum.Ísland er í 26. sæti en var í 17. sæti 2021. Í tilkynningu Hugverkastofunnar segir að Ísland haldi stöðu sinni nokkuð vel á milli ára þegar litið er til aðstæðna til nýsköpunar en falli þar um eitt sæti, úr 20. í 21. Fallið er meira þegar horft er til afraksturs nýsköpunar þar sem Ísland hefur farið úr 16. sæti 2021 í 29. sæti í fyrra og er í 33. sæti í ár. Ísland hefur aldrei verið neðar á listanum yfir afrakstur nýsköpunar.Nýsköpunarvísitalan var kynnt í dag.WIPO