Ertu að smíða lækningatæki í bílskúrnum? Starfar þú hjá fyrirtæki í heilsutækni og sérð ný tækifæri á markaði? Ertu rannsakandi sem vilt hagnýta rannsóknir þínar með stofnun fyrirtækis? Eða hefur þú jafnvel búið til app sem styður við heilsu fólks? Þá hvetjum við þig til að sækja um í KLAK health, viðskiptahraðal KLAK - Icelandic Startups sem hefst 21. október.