Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir liggja á að finna lausn í kjaramálum áður en frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út eftir viku.„Kjarasamningar eru með forsendubrest í augnablikinu og við erum að ræða viðbragðið.“Bjarni var til viðtals í Morgunútvarpinu á Rás 2.Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir stöðuna þrönga fyrir alla sem koma að kjarasamningum. Vika er til stefnu til að bregðast við forsendubresti.Hann segir að atvinnurekendur vilji ekki hella olíu á eldinn með því að auka kostnað atvinnulífsins með launagreiðslum.„Vegna þess að við vitum hvað mun gerast í framhaldinu. Það mun bara viðhalda vandamálinu.“Hann segir stöðuna þrönga fyrir alla sem koma að kjaraviðræðunum. GAGNRÝNIR AFSTÖÐU FLUGVIRKJA Bjarni segir nýleg dæmi þess a