„Hann var ekkert voðalega samvinnuþýður í fyrstu“

Næturvaktin var róleg hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en dagarnir geta boðið upp á fjölbreytt verkefni. Það sannaðist í Fossvogi í Reykjavík í fyrradag þegar vegfarandi þurfti á hjálp að halda.„Við fengum tilkynningu um kött fastan í tré og við áttum að kíkja á það og aðstoða hann við að koma niður. Þetta gekk nú bara vel fyrir sig. Hann var ekkert voðalega samvinnuþýður í fyrstu. Síðan ákvað hann að fara bara niður sjálfur,“ segir Fannar Logi Þórarinsson slökkviliðsmaður.Fannar Logi segir að það komi nokkrum sinnum fyrir að bjarga þurfi köttum úr trjám. „Það er yfirleitt eitthvað sem ógnar þeim og veldur því að þeir hlaupa upp. Þetta er hræðsla í þeim yfirleitt og þeir eiga mjög oft erfitt með að koma niður sjálfir.“Hann segir að það komi af og til fyrir að koma þurfi köttum til hjál
„Hann var ekkert voðalega samvinnuþýður í fyrstu“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd