Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar gagnrýnir sérstaklega í bókun á fundi borgarstjórnar í gær að meirihlutinn hafi bætt við 50 milljónum í stólakaup og LED-skjái í borgarstjórnarsalinn á sama tíma og mikið aðhald er í rekstri borgarinnar, þar sem meðal annars fjölmörgum hefur verið sagt upp á ýmsum sviðum og deildum. Bókunin er í tengslum við viðauka í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2026...