Stormur á norðaustanverðu landinu og miðhálendinu

Stormur geisar á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og miðhálendinu. Vindur er á bilinu 15-25 metrar á sekúndu og getur farið yfir 35 metra á sekúndu í hviðum. Sunnan jökla má búast við talsverðri rigningu með tilheyrandi vatnavöxtum.Djúp lægð yfir Suðvesturlandi veldur þessu óveðri á norðaustanverðu landinu en vindur er öllu hægari vestantil. Óveðrið gengur yfir í kringum hádegi og það dregur smám saman úr vindi á landinu eftir því sem líður á daginn.Veðurspáin er svohljóðandi:Austlæg átt ,15-23 metrar á sekúndu, en 10-18 vestantil. Víða rigning. Snýst í sunnan og suðaustan 10-15 í dag, en 15-23 norðaustantil fram að hádegi. Rigning eða skúrir, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast norðanlands.Sunnan 5-13 og skúrir á morgun, en úrkomulítið um landið norðausta
Stormur á norðaustanverðu landinu og miðhálendinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd