Alexander Skarsgård segist verða að leggja reglulega frá sér símann og fara út í náttúruna. Það sé nauðsynlegt mótvægi við umstangið sem fylgir kvikmyndahátíðum og tökum á bíómyndum. Þess vegna komi hann svo oft til Íslands til að ganga eða veiða.Skarsgård tók við heiðursverðlaunum RIFF 24. september en í þetta skiptið staldraði hann stutt við. „Ég stoppa ekki lengi en það er yndislegt að vera hérna. Ég hef saknað Íslands,“ segir hann í spjalli við Guðrúnu Sóleyju Gestsdóttur í Kastljósi þar sem þau ræddu lífið, framann og nýju kvikmynd Skarsgård, Wicker.Þar leikur hann mann sem fléttaður er úr tágum og blásinn lífi til að gerast lífsförunautur einmana konu í litlu þorpi á óræðum tíma sem minnir á miðaldir. TÁGAMAÐURINN SKARSGÅRD „Wicker frekar rugluð gamanmynd,“ segir Skarsgård. „Myndi