Christa Gail Pike lifði af tvær aftökutilraunir.AP/Tennessee Department of Correction / UncreditedFimmtug bandarísk kona á dauðadeild fangelsis í Tennessee lifði af tvær aftökutilraunir í gærkvöld. Alríkisdómstóll fyrirskipaði að aftökunni skyldi frestað tímabundið í ljósi þess að Christa Gail Pike var enn á lífi eftir að hún hafði tvisvar verið sprautuð með pentóbarbítali, eitrinu sem notað er við aftökur í ríkinu.Hæstiréttur Tennessee ógilti úrskurðinn og ríkisstjórinn Bill Lee þvertók fyrir að náða Pike, samkvæmt fréttum NBC-fréttastöðvarinnar. Lögmenn hennar krefjast þess að ekki verði reynt að lífláta Pike að nýju. Hún var dæmd til dauða fyrir morð sem hún framdi ásamt kærasta sínum árið 1995 þegar hún var átján ára.