Gistinóttum á íslenskum hótelum fækkaði um 2,5 af hundraði í ágúst samanborið við sama tíma í fyrra.Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi voru gistinæturnar rúmlega 653 þúsund á landsvísu samanborið við tæplega 670 þúsund á sama tíma í fyrra.Fyrstu átta mánuði ársins voru gistinætur samanlagt 0,3 prósentum færri en á sama tíma 2025. Fækkunin var mest á höfuðborgarsvæðinu eða 5,3 prósent, 3,6 prósent á Austurlandi og um 3,2 prósent á Suðurlandi.Gistinóttum fjölgaði um tæp sjö af hundraði á Vesturlandi og 4,3 prósent á Vesturlandi og Vestfjörðum auk þess sem lítils háttar aukning varð á Norðurlandi. Framboð hótelherbergja jókst um 1,7 prósent í ágúst.Um það bil 607 þúsund gistinótta á hótelum má rekja til útlendinga og rúmlega 226 þúsund þeirra voru Bandaríkja