Auðkýfingnum Elon Musk er ætlað stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíðarhernað á vegum bandaríska varnarmálaráðuneytisins.Elon Musk er ríkasti maður heims og hefur fengið ýmis verkefni innan bandarískastjórkerfsins.EPA / SHAWN THEWRáðherrann Pete Hegseth tilkynnti þetta í ávarpi í herstöð í Virginíu-ríki í gær og sagðist vænta niðurstaðna úr verkefninu innan 3 mánaða. „Markmiðið er að horfa skapandi augum til þeirra breytinga sem framtíðin skapar stríðsrekstri og hvernig unnt verði að styrkja þá hernaðargetu sem við þegar ráðum yfir,“ sagði Hegseth.Hann tilkynnti jafnframt að fækkað hefði verið í hópi hershöfðingja og flotaforingja í Bandaríkjaher um fimmtung. Það hafi verið gert hvort tveggja með uppsögnum og fækkun stöðugilda innan hersins.