Heilbrigðisyfirvöld í Lancaster-sýslu í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum staðfestu í gær fimmta andlátið þar í landi tengt mislingum. Alls hafa verið skráð tæplega 3.500 tilfelli mislinga í 47 ríkjum, samkvæmt tölum Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna, í þessum versta mislingafaraldri um 35 ára skeið.Í Pennsylvaniu eru skrásett 943 tilfelli. Yfirvöld segja hinn látna hafa verið óbólusettan án þess að tíunda það frekar. Allir sem látist hafa af völdum sjúkdómsins í ríkinu eru óbólusettir.Fjöldinn allur af Amish-fólki býr í sýslunni. Það er kristinn trúarhópur sem hafnar flestri nútímatækni. Til dæmis þiggja hlutfallslega færri úr þeim hópi bólusetningar en almennt gerist. Hvað eru mislingar? Mislingar er veirusjúkdómur sem er mjög smitandi og einkennist af hita og útbrotum um allan líkamann. Sjúkd