Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa rætt tilræði um borð í farþegaþotu FlyDubai í hörgul við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Flestir farþeganna voru Ísraelsmenn og þarlend stjórnvöld líta á hnífaárás annars flugmannsins gegn hinum sem tilraun til að granda vélinni og þar með hryðjuverk. Trump sagði við blaðamenn á forsetaskrifstofunni í kvöld að hugsanlega væri flugmaðurinn hryðjuverkamaður eða brjálæðingur. „Hann stakk flugstjórann,“ sagði Trump og bætti við að enn væri flest á huldu um ástæður árásarinnar. Þotan var á leið frá Dúbaí til Tel Aviv í gærmorgun. Farþegar yfirbuguðu árásarmanninn, sem talinn er hafa ætlað að brotlenda þotunni á ísraelsku landsvæði. Mikil skelfing greip um sig um borð í vélinni sem flutti um 150 farþega. Þotan féll um 17 þúsund fet meðan á