Íbúar nærri framkvæmdasvæðinu í Arnarlandi hafa margir hverjir lýst því að sprengingar á svæðinu finnist vel á heimilum sem skelfi öll og að það heyrist ekki nægilega vel í hljóðmerkjum sem eigi að koma á undan og á eftir hverri sprengingu. Sprengistjóri segir að leitast sé við að valda sem minnstu ónæði en hann skilji vel að það sé ekki spennandi að hafa þetta í þéttbýli.