Landtengingarbúnaður til að gera ferjunni Norrænu kleift að ganga fyrir rafmagni á meðan hún er í höfn á Seyðisfirði var formlega tekinn í notkun í dag. Ferjan siglir þó áfram á olíu. Þetta er fyrst og fremst gert til að minnka mengun á meðan hún er í höfn.„Þetta er mikill gleðidagur, því núna liggur Norræna hér í höfn á Seyðisfirði og það heyrist ekkert í henni af því að það þurfa engar vélar að vera í gangi,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings.Á veturna er Norræna í höfn tvo daga í viku en á sumrin stoppar hún í tvo klukkutíma.Dagmar Ýr segir að þetta sé fyrsta skrefið í raftengingu hafna Múlaþings.„Nú þurfum við að skoða hvort við getum haldið áfram. Það er auðvitað það sem við viljum, við fáum mikið af skemmtiferðaskipum til okkar, en þau geta ekki notað þessa tengi