Snjóflóð sem féll fyrir sex árum gerði sérfræðingum ljóst að hús undir varnargörðum væru ekki jafn örugg og áður var talið. Ríkið ákvað fyrir 30 árum að byggja varanlegar varnir ofan við alla byggð á snjóflóðahættusvæðum. Því verki er ekki lokið og líkur eru á að biðin eftir varnargörðum lengist enn.Á fimmta tug Siglfirðinga hlýddu á ofanflóðasérfræðinga í ráðhúsi bæjarins í lok ágúst. Fundurinn var þungur – níu milljörðum hefur verið varið í byggingu snjóflóðavarna fyrir ofan Siglufjörð en miðað við nýjustu rannsóknir verja þær ekki alla byggðina.Í fimm bæjum til viðbótar eru fundir fram undan þar sem erindið er það sama – íbúðarhús sem talin voru í vari undir varnargörðum teljast nú á hættusvæði.Til þess að skilja hvað liggur að baki, verður að spóla nokkur ár til baka.Undanfarin ár hafa